NVL
Norrænt tengslanet um nám fullorðinna - NVL
Norræna tengslanetið um nám fullorðinna - NVL (Nordiskt Nätverk för Vuxnas Lärande) er norrænt verkefni sem Norræna ráðherranefndin (NMR) hefur falið Miðstöð sveigjanlegs náms (CFL) í Svíþjóð að leiða. Starfsemi NVL byggist á stefnu NMR um menntun og rannsóknir, stefnu Stýrihóps [NMR] fyrir fullorðinsfræðslu (Styringsgruppen for Voksnes Læring - SVL) og árlegrar stefnu þess lands sem fer með formennsku í ráðherranefndinni hverju sinni.
Sýn NVL
NVL vinnur þverfaglega út frá sjónarhorni símenntunar í fullorðinsfræðslu. Sýn NVL beinist að því að auka samlegðaráhrif í norrænu samstarfi með því að varpa ljósi á fjölbreytni þess, styrkja samstarfið og norrænu víddina.
Samskiptavettvangur
NVL er norrænn samskiptavettvangur fyrir verkefni innan allra sviða fullorðinsfræðslu sem og milli stefnumörkunar og framkvæmda. NVL á að hvetja til samræðu milli ólíkra faghópa á Norðurlöndunum, leggja grunn að nýsköpun og vinnur að því að koma á nýjum tengslanetum og styrkja framlag þeirra til norræns samstarfs.
NVL á að vinna að eftirfarandi markmiðum:
Símenntun og færnieflingu á öllum sviðum fræðslu og mati á raunfærni
Eflingu gæða og þróun gæðaviðmiða í fullorðinsfræðslu
Þverfaglegu samstarfi til þess að auka á samkeppnishæfni samfélagsins
Þverfaglegu samstarfi til þess að efla persónulegan þroska og lýðræðislega þátttöku.
Árangur af starfsemi NVL á að varpa ljósi á fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum með því að safna saman hæfni og reynslu frá Norðurlöndunum fimm og sjálfstjórnarsvæðunum þremur. Markmiðið er að sýna og miðla þekkingu um nám fullorðinna á Norðurlöndunum, grannsvæðunum, norðvestur Rússlandi og öðrum löndum Evrópu.
Norrænt samstarf
Stýrihópur norrænu ráðherranefndarinnar um fullorðinsfræðslu (SVL) stýrir og ber ábyrgð á starfi NVL í fullorðinsfræðslu. SVL sér einnig um úthlutun styrkja úr sjóði Nordplus voksen. Fjármagni til styrktar verkefnum innan fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum er útdeilt úr sjóðnum Nordplus – fullorðnir (Nordplus – voksen). Nordplus voksen á að stuðla að þróun samvinnu, samstarfs og samstarfsneta þeirra sem vinna að fullorðinsfræðslu (menntastofnana sem og fyrirtækja, félaga og óháðra félagasamtaka) jafnframt því að stuðla að gæðaþróun og nýsköpun á öllum sviðum fullorðinsfræðslu.
Fulltrúi Íslands í SVL er Ólafur Grétar Kristjánsson, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu.
Sjá meira á http://www.nordplus.is/page/voksen
Á vefslóðinni www.nordvux.net er að finna allar upplýsingar um starfsemi NVL á Norðurlöndunum. Fulltrúi NVL á Íslandi er Anna Vilborg Einarsdóttir og er hún með netfangið anna@frae.is
Á vegum NVL starfa margir faghópar á Íslandi
Bakhópur um starf NVL á Íslandi.
Íslenska bakhópinn skipa: Aðalheiður Sigurjónsdóttir Mími-símenntun fyrir Leikn, samtök um fullorðinsfræðslu á Íslandi, Ólafur Grétar Kristjánsson menntamálaráðuneyti, Elín Hallgrímsdóttir HA, Steinunn Hafstað FA, Ragnhildur Zoëga Nordplus voksen og Sveinn Aðalsteinsson fulltrúi atvinnulífsins, Starfsafli.
Lestrarráðið
Fulltrúi Íslands er Guðmundur B. Kristmundsson, lektor við KHÍ. Skýrslan Alfabetiserings utbildning i Norden og frekari upplýsingar um starfsemi Lestrarráðsins er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/575/alfaradet.htm
Faghópur um kennslufræði
Fulltrúi Íslands er Sigrún Jóhannesdóttur Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Meira um starfsemi kennslufræðihóps eru á http://www.nordvux.net/page/581/vuxenpedagogik.htm
Ráðgjafarnetið
Fulltrúi Íslands er Anna Sigurðardóttir, lektior við KHÍ. Meira um ráðgjafarnetið á http://www.nordvux.net/page/580/vagledning.htm
Net um raunfærnimat
Fulltrúi Íslands er Fjóla María Lárusdóttir hjá Fræsðlumiðstöð atvinnulífsins. Netið er ráðgefandi fyrir SVL og NVL um raunfærnimat. Netið safnar saman góðum dæmum frá Norðurlöndunum og hefur gert samanburðarrannsókn á því hvað verið er að meta hjá einstaklingum á Norðurlöndunum. Myndaður hefur verið bakhópur um raunfærnimat á Íslandi. Í honum eru Arnheiður Gígja Hermannsdóttir Mími-símenntun, Björn Garðarsson Fagráði verslunar og þjónustu, Auður Þórhallsdóttir Samskipum, Heimir Guðjónsson FB og Iðunn Kjartansdóttir Iðunni-fræðslusetri. Stefnt er að hagnýtu kerfi um raunfærnimat árið 2009. Skýrslan Validering i de nordiska ländarna er nýútkomin en meira um faghópinn er á síðu netsins http://www.nordvux.net/page/573/validering.htm
Eldri borgarar í atvinnulífinu
Fulltrúi Íslands er séra Bernharður Guðmundsson. Meira um verkefni faghópsins er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/570/aldreiarbetslivet.htm
Formleg fullorðinsfræðsla
Fulltrúi Íslands er Björg Árnadóttir hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Helstu verkefni hópsins hefur verið gerð skýrsla um sérkennslu árið 2006, raunfærnimat kennara í kennslustofunum og tækifæri til starfsmenntunar á Norðurlöndunum. Ráðstefna um gæði í menntun verður haldin í Borgarnesi árið 2009. Meira um faghópinn og verkefni hans er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/577/formellvuxenutbildning.htm
Gæðanet
Fulltrúi Íslands er Guðfinna Harðardóttir hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Stór ráðstefna var haldin á vegum faghópsins dagana 14. – 15. maí 2008. Á ráðstefnunni var kynnt skýrsla um gæði í fullorðinsfræðslu og eru í henni greiningardæmi frá öllum Norðurlöndunum. 18 Íslendingar úr fullorðinsfræðslu sóttu ráðstefnuna.
Á Íslandi er starfandi bakhópur um gæði í fullorðinsfræðslu. Meðlimir hópsins eru Emil Björnsson Þekkingarneti Austurlands, Kristín Njálsdóttir Landsmennt, Sigríður Ágústsdóttir Fjöltækniskóla Íslands, Guðfinna Harðardóttir FA og Gylfi Einarsson Iðunni-fræðslusetri.
Meira um gæðahóp NVL og ráðstefnuna er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/578/kvalitetsnatverk.htm
Fjarkennsluhópurinn Distans
Fulltrúi Íslands er Hróbjartur Árnason, lektor við KHÍ. Haldið var málþing á vegum þessa hóps um Skipulag náms í Kaupmannahöfn dagana 22. – 23. maí 2008. Meira um fyrri ráðstefnur og fjarkennsluhópinn er á http://www.nordvux.net/page/574/distansnatverk.htm
Atvinnulíf fyrir alla
Fulltrúi Íslands er Þór Ingi Daníelsson, handverksverkstæðinu Ásgarði. Ráðstefna á vegum þessa hóps var haldin á Íslandi þann 28. maí 2008 þar sem fullorðnir með þroskahömlum skipulögðu og stjórnuðu. Umræðuefnið var atvinnu- og skólamál fatlaðra. Frekari upplýsingar um starfsemi hópsins er á síðunni http://www.nordvux.net/page/610/læringpaarbeidsplassenhindringer.htm
Fangelsisnet
Fulltrúar Íslands eru þeir Erlendur Baldursson Fangelsismálastofnun og Ingis Ingason kennslustjóri á Litla Hrauni. Meira um starfsemi þess er á slóðinni http://www.nordvux.net/page/373/page.htm
Rannsóknanet
Fulltrúi Íslands er Jón Torfi Jónasson frá HÍ. Allar upplýsingar um starfsemi þess nets er á http://www.nordvux.net/page/518/forskningsnatverk.htm